23.5.2009 | 21:07
Stærðfræðidæmi
Ég hef alltaf haft gaman af stærðfræði og þá sérstaklega vegna þess hve tær hún er ..plús fyrir framan er mínus fyrir aftan og allt sem er margfaldað er hægt að leggja saman og fá sömu niðurstöðu og þessháttar.
Nýlega var lagt fyrir mig dæmi sem ég hef ekki fengið til að ganga upp hjá mér og fer í mótsögn við allar þekktar stærðfræði reglur um að ganga upp. Hérna kemur dæmið.
3 manneskjur fóru á hótel og borguðu 10 kr hver ( líklega Dönsk króna hehe ) þetta fólk greiddi semsagt 10x3= 30 kr. síðan var herbergið ekki eins og til var ætlast og fólkið kvartaði og þá ákvað hótelsjórinn að endurgreiða þeim 5kr og bað þjón að koma þessum 5kr til skila og hann kunni ekki að skipta 5kr milli 3 manna og þess vegna lét hann hvern um sig hafa 1 kr ..1x3=3.. og stal svo 2kr sjálfur samkvæmt þessu þá hafði hver greitt 9 krónur því 10-1=9 og 3x9=27 og svo krónurnar 2 sem þjónninn stal það gera 29. en ekkert hefur verið tekið úr dæminu og niðurstaðan ætti að vera 30 en er 29
30-5=25 sem skiptust 3 og 2 ...3x9=27+2=29 þetta reikningadæmi á alls ekki getað verið en samt er það ..ef einhver getur fundið þessa 1 kr endilega látið í ykkur heira ..
Þetta er ekki orðaruglingur eða þraut þetta er alvöru reikningadæmi sem bara gengur ekki upp
Um bloggið
Valdimar Melrakki
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já en Valdimar..þau borguðu samt 28 krónur samkvæmt þessu...og þá er það 28+2=30...en samt..3x9 er jú 27...þannig að þetta er alveg ótrúlega ruglandi...hux hux
Ásta Björk Hermannsdóttir, 23.5.2009 kl. 23:16
Man ekki svarið ákkúrat núna við þessu, en það er ákaflega einfalt, krakkarnir í 5 bekk voru einmitt að reikna þetta dæmi í vetur, í skólanum sem ég er að vinna í .
Aprílrós, 24.5.2009 kl. 01:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.