Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Ríkistjórnin

Ég hef nú verið að spá hvernig í skollanum við getum losnað við þingmenn og þá sérstaklega ríkisstjórnina því við höfum verið að mótmæla á hverjum laugardegi nokkuð legi og nokkuð mörg en samt fara þessir bjöllusauðir ekki fet þannig að mér datt í hug ný stefna í málinu...við kaupum fallega snekkja handa þingheimi og plötum á til að sigla framhjá Sómalíu og vonumst til að sjóræningjarnir þar steli þeim.

Sparnaður

Núna þegar allt er að fara fjandans til að sögn blaðanna þá er fólk hvatt til að spara í öllu sem hægt er og þegar ég þarf að fara ferðar minnnar í borginni þá þá eru jafn mikil umferð og hefur verið síðustu mánuði.

Notkun reiðhjóla hefur ekki aukist sýnist mér, ég hef nú lagt í vana minn að fara í vinnuna annað hvort labbandi sem ég geri oftast eða á reiðhjóli en um daginn fór ég reyndar á kayak í vinnuna og þá var meðfilgjandi mynd tekin af mér img_2284.jpg


Hugleiðingar.

Ég tók eftir auglýsingu frá kirkjunni að fermingarbörn væru send í hús til að betla pening fyrir kirkjuna og ég verð nú að segja að mér finnst þetta í hæsta máta ósmekklega gert af kirkjunni að notfæra sér börnin á þennan hátt,,skammist ykkar ,, annars er svosem ekkert nýtt að kirkjunnar menn notfæri sér börn og kirkjan hefur reynt að setja fram lög sem passa það að ekki sé hægt að lögsækja þá fyrir þetta og jafnframt hafa þessir andskotar hylmt yfir með þessum aulum og fært þá eingöngu til í starfi.

Ég hef lengi haldið því fram að mestu glæpaverk og grimmdarverk hafi kirkjan framið með guð sem skjöld..t.d má nefna krossferðir ..galdrabrennur og svona mætti lengi telja og kristin trúfélög sem eru sjálfstæð eru engu skárri og mýmörg dæmi þess að það hafa verið fjöldamorð og ég veit ekki hvað  og hvað og styðst er nú að nefna hann Guðmund Jónsson sem oft er kenndu við Byrgið sem gerði nú aldeilis óskunda með guð að vopni, okkar frægasti predikari Gunnar oft kenndu við krossinn hélt þrumandi ræðu fyrir um 8 árum síðan þegar Bush var kjörinn í embætti forseta U.S.A og sagði hann meðan annars að Bush væri frelsaður maður og gengi veg drottins og allt sem hann gerði mundi hann gera fyrir guð og hann ( Gunnar í Krossinum ) mundi styðja hans verk heilshugar ..guð vill semsagt styrjaldir og þau voðaverk sem þessi þjóð hefur staðið að síðustu 8 ár... Aftur á móti þekki ég nokkuð af fólki sem lifir sínu daglegu lífi í trú á guð og þetta fólk er almennt hið allra mesta sóma fólk og get ég dregið þá ályktun að trú sé góð en trúarbrögð slæm.

Þetta vesen með bankana og Bretland.

Fjármálaráðherra Breta hrifsaði isl banka til sín í skjóli hryðjuverka laga og með því stimplaði hann Íslensku þjóðina sem hryðjuverkaþjóð á einu bretti og fyrir það fordæmi ég þetta gerpi, ég var innilega hissa þegar þetta gerðist að Bretar myndu hafa  kosið yfir sig svona ruglustamp því ég þekki nokkra Breta bæði Englending og skota og þetta er alveg hreint úrvals Öndvegis fólk sem á miklu betra skilið en svona stjórn en þá mundi ég eftir hvaða endemis aftanúrkreistingar eru hérna við stjórnvölin..Geir Hor sem heldur hlíf yfir Dabba kóng, það sem er að gerast í Bretlandi núna er voðalega svipað og gerðist þegar það var farið að hall undan fæti hjá Járnfrúnni á sínum tíma þá fór hún í stríð við Argentínu og vann kosningarnar í kjölfarið. ( Falklands eyja stríðið)

 Núna er Ríkisstjórnin og fleiri komnir með lífverði því þeir eru orðir hræddir að vera snúnir úr hálsliðnum fyrir hvað þeir hafa gert en afaverju á hinn almenni skattborgari að borga þessa gæslu, við erum hluti af þúsund ára ríkinu ..Þ.e.a.s það var friður hérna í 1000 ár þangað vil Dabbi og co ákváðu að styðja stríðið í írak og þar með enda þessi 1000 ára frið hérna og það er til enskt orða tiltæki ..thous who live by the sword die by the sword...þessir aular vildu vopnuð átöl þá er það bara gott á þá að þeir verði drepnir með vopnum og mér finnst engan vegin að við ættum að borga gæslu fyrir þessa aula því þeir komu sér sjálfir í þá stöðu að vera hataðir af lýðnum

 


Um bloggið

Valdimar Melrakki

Höfundur

Valdimar Melrakki
Valdimar Melrakki

Spurt er

Er rétt að ég gefi út ævisöguna mína
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Erla og Davíð
  • ...i_og_hafdor
  • ...valdi_1980
  • ...img_2284
  • 100_0444

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 9370

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband