Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

klám

Ég heyrði í útvarpinu í dag karl sem var að rifja upp þegar klámráðstefnan átti að var fyrir nokkrum árum síðan og hann mynntist þess að ein af rökum gegn þeirri ráðstefnu væri .."munduð þið vilja að vopnaframleiðendur héldu ráðstefnu hérna"...

Vopnaframleiðendur eða réttara sagt breskt vopnaframleiðslu fyrirtæki er með ráðstefnu hérna og ég hef nú ekki heyrt nein mótmæli gegn þeim og þess vegna segi ég .... við eigum fullan rétt að fá hingað Klámráðstefnu og halda hana með pomp og prakt.

Svo heyrði ég auglýsingu í útvarpinu í dag líka hún hljóðaði svona..... lystdans þarf ekki að vera leiðinlegur    Goldfinger... ég verð nú því miður að játa á mig að hafa því miður ekki farið á þennan stað ennþá en þar sem þetta er svona mikill menningar staður með lystadans og alles verður maður nú að fara að bregða undir sig betri fætinum og kíkja á Geira og hans fólk, var líka að spá hvort ég gæti ekki tekið með mér línuskautana mína og lánað stelpunum og  þannig slegið 2 flugur í einu höggi og séð lystdans á skautum líka þannig maður þurfi ekki að flandrast á fleiri menningarviðburði.

 


Gáta

þú ert staddur/stödd á stað ( ekki velta þér upp úr því hvernig þú komst þangað þú ert bara þar) og inn á þessum stað eru 2 hurðar og fyrir utan þessar 2 hurðar eru 2 menn ( semsagt 2 hurðar og 2 menn ) annar mannanna segir alltaf satt hinn skrökvar alltaf og þú getur ekki með neinu móti séð hvor segir satt og hver ekki...

Önnur hurðin liggur á þann stað sem þú vilt fara hin á þann stað sem þú villt alls ekki fara .

þú mátt spyrja annan manninn 1 spurningu og með þeirri spurningu áttu að geta fundið út hvor hurðina þú velur. 

það er ekki hægt að opna hurðina og loka aftur ..þegar hurðin er opnuð þá verðuru að ganga í gegn... þú semsagt getur ekki svindlað á neinn hátt...

 Hver er spurningin sem þú mundir spyrja annan manninn?


Atgeir

Var að velta fyrir mér styttunni af Ingólfi en þar hefur hann vopnið Atgeir.

Samkvæmt því sem ég hef lesið mig til um þetta ágætis vopn er það að blaðið er 50-55 cm langt sem staðsett er á 180-220 cm löngu skaft og vegur að lámarki 2,5kg og vopn þetta var notað á móti riddurum nánast eingöngu og kom fram á sjónarsviðið í Evrópu á þrettándu öld en þá var nú blessaður karlinn hann Ingólfur löngu grjót dauður.

 Kannski getum við bara verð heppin að þessi snillingur sem gerði styttuna vissi ekki meira um vopn en þetta að hann hafi ekki látið hann vera með AK 47.

 Einu heimildir sem er af Bryntrölli ( Atgeir ) eru þegar Hrútur hjó milli herða Eldrgríms ( Laxdæla 37 kafli) og það bryntröll hafi verið í farangri Eggert Ólafssonar skálds sem fórst á Breiðafirði 30. maí 1768.

Er ekki krafa okkar Íslendinga að þegar það er verið að gera styttur eða minnismerki af forfeðrum okkar er stuðst við heimildir en ekki bara bullað eitthvað út í loftið? 

 


Hugleiðing

Var að spá! ..Búddistar er nú nokkuð merkileg trúarbrögð og ég virði þau mikið og finnst vera mjög mögnuð en það er samt eitt sem ég var að velta fyrir mér.

Búdda kenndi og iðkaði mikla sjálfstjórn... en maðurinn var ábyggilega 300kg hvernig getur slíkur maður talað um sjálfstjórn, nema náttúrulega að hann hafi verið lasinn sem gerir hann miklu mun magnaðri fyrir vikið. 


Nefndir

Sá grein í dag á mbl.is .." Landbúnaðarnefnd leggst gegn nektaransi "

Til að þetta fólk geti í raun verið með eða á móti verða þau að hafa kynnt sér málið ( annars eru þetta einungis fordómar hjá þeim) og ég spyr hvað var landbúnaðarnefnd að brambolta á nektarstað ?

 Ég sé núna að ég er algjörlega á rangri vinnu ..ég vill komast í Landbúnaðarnefnd eða einhverja aðra nefnd sem fær borgað fyrir að horfa á berar konur. 

Ég held reyndar að málið með þessari aðgerð hafi verið það að karlarnir í þessari nefnd hafa legið undir grun af kerlum sínum að vera að spila póker eða eitthvað í þeim dúr og konurnar hafa heimtað og líklega mjög óvant að koma með þeim á nefndarfund og þegar þangað var komið og fokið í öll skjól að þeir gætu spilað póker eða hnýtt flugur eða hvað það nú er sem þessir herramenn gera þarna og þeir hafa fattað að þurfa að sitja þarna með konunum og verið eins og gapandi kjánar og engin mál á dagskrá og þá hefur einum snillingnum dottið það snjallræði í hug að fá smá prik frá kerlu sinni og vonandi að losna undan fleiri heimsóknum frá kvenfélaginu að leggja til á nefndarfundi að leggjast gegn nektardansi .. 

Það er reyndar önnur skýring sem gæti líka passað að þar sem landbúnaðarnefnd fer með mál í sveitum að þeir hafi lagst gegn línudansi en það hafi einungis verið prentvilla í greininni. 



Gáta

Það er herbergi og inn í herberginu er bara ein ljósapera ( með tilheyrandi rafmagns stuffi i)

það eru 3 ljósarofar fyrir utan herbergið og þú átt að finna út hvaða rofi það er sem kveikir ljósið.

þú getur ekkert séð inn í herbergið og þú mátt bara einu sinni opna hurðina og fara inn í herbergið en eftir það máttu ekki fikta meira í rofunum, áður en þú opnar herbergið máttu fikta í rofunum að vild.

 


Nafn á páfagaukinn

Ég hef loksins fundið nafn á gauksa.

með tilliti hvar ég er fæddur og hvað við erum miklir félagar hef ég fundið út að það væri líklega best að kalla hann Félagi. 


Gyðingar

Ég vil taka það fram strax að ég er alls ekki að dæma einn né neinn einungis að velta fyrir mér þeim upplýsingum sem ég hef.

Ég hef verið að skoða fræðsluþætti frá BBC um Auchwitz og eins og góður fræðsluþætti sæmir þá kveiknuðu upp fleiri spurningar en þátturinn svaraði.

Sjálf grimmdarverkin þarna komu mér ekki svo mikið á óvart enda hefur það verið tíundað í yfir 1/2 öld, þetta voru skelfilegar aðstæður þarna og ekki einungis fyrir Gyðinga heldur líka Sígauna en versta meðferð held ég að Rússar hafi fengið.

það sem kom mér mest á óvart voru viðtölin við þá sem lifðu á þessum tíma bæði fanga og fangaverði og einnig fólk í hernum og venjulega borgara og það virtist vera mikil djúpsæð andúð í garð Gyðinga og í gettoinu í warshaw þá voru gyðingar þar yfir og þeir voru síst skárri en SS menn og sýndu sínu eigin fólki yfirgang ef það hentaði þeirra hagsmunum betur og eftir stríð hefur sára lítið verið talað um það sem þar gerðist af gyðingum sjálfum.

 Eftir stríð var þeim reddað landi fyrir sig sem, því það virðist sem þjóðir hafi greinilega ekki viljað fá gyðinga til baka,meira segja í Slóvakíu þar sem prestar og trúað fólk stjórnaði á þessum árum og í gegnum tíðina hefur í kristinni menningu verið talið að gyðingar væru guðs útvalda þjóð, í Slóvakíu greiddu þeir SS 500 af sínum gjalmiðli ( geri mér ekki grein fyrir verðgildi þessara peninga en þetta átti að vera nóg til að sjá þeim farborða) til að losna við gyðingana úr landinu.

Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að ráðast á gyðinga hafi verið snilldar hernaðar bragð að hálfu Hitlers til að þjappa saman sinni þjóð um sameiginlegan óvin til að fólk væri ekki að nöldra um hvað væri að gerast í stríðinu.. þetta er reyndar sama aðferð og er notuð í USA , þeir virðast alltaf þurfa utankomandi óvin til að halda þjóðinni saman , eftir kalda stríðinu lauk þá hafa verið eilíf stríð en það er nú önnur saga.

Eftir að hafa horft á þessa þætti um Auchwitz og helförina þá er ég farin að spá hvort það hafi verið eithvað sem gyðingar hafi gert til að öðlast þetta mikla hatur en þessir atburðir hafi verið þaggaðir í kaf til að þjáningar þeirra eftir helförina væru minni? 

Gyðingar eru að gera sömu hluti við náranna sína og var gert við þá í stríðinu, ekki Auchwitz dæmið og það allt en gettoin og annað og þetta eftirlit....yfirgangur gyðinga í israel ( eða kannski bara ráðamanna þar ) hefur einkennst að yfirgangi og hroka sem hefur verið þess valdandi að í heiminum eru þeir að verða fyrir almennri andúð , ég er alls ekki að segja að nágrannar þeirra séu neitt skárri en það er bara skrítið að þeir geri annar þjóð það sem þeir hafa fordæmt aðra fyrir að hafa gert við sig.

Ég fór að spá í vistina í þessum útrímgarbúðum að fólkinu var þrælað til dauða og var grind horað og það var ekki hugsað um fangana sem mennskt fólk, getur kannski hugsast að þeim hafi verið gefið að borða þeir sem komu úr gasklefanum til að sjá hvað gerðist, geri mér grein fyrir að þetta er skelfileg hugsun en aftur á móti gerði læknar þarna hrikalegar tilraunir á fólki.

Ég vil taka það fram aftur að ég er ekki að dæma neinn bara að spá í þessi mál því þegar sagan gleimist getur hún gerst aftur. 


Tamning

Ég og páfagaukurinn erum orðnir svona líka dandala vinir, í gær gat ég fengið hann til að setjast á futtan á mér og í dag sat hann á öxlinni ( hef reyndar 2 axlir en hann sat semsat á annari þeirra )á mér á meðan ég horði á fræðsluþátt um Auschwitz.

þannig að með þessum hraða ætti hann að geta ekið bíl og gert heimils innkaupin um jól.

Enn ekki komið nafn á gausa samt. 


Spádómar

Ég hef verið að velta fyrir mér spádómum og þá sérstaklega gemlinugum eins og Nostradamus og Jóhannesi ( sem skrifaði opinberunar bók jóhannesar sem er aftast í biblíunni ).

Það sem þessir 2 menn hafa sameiginlegt í sínum spádómum er að það er ekki nokkur lifandi leið að skilja út nér suður í þeim,, t,d spáði nostaradamus spádóm sem innihélt 2 stóra steina og brennandi borg, þetta var túlkað í seinni heimstyjöldinni að steinarnir 2 væru Bretland og þýskaland og brennadi borgin væri London eftir sprenjuárásir Nasista en núna eru menn að halda því framm að steinarnir 2 séu tvíburaturnarnir í New Yourk og eldurinn þar. 

Það hafa komið upp spekingar annað slagið í gegnum aldirnar sem hafa stúderað spádómana og komist að hvernig kerfið væri og hafa getað sýnt framm á að þeir kynnu kerfið með að sýna framm á að hlutir í spádómunum hefðu ræst og hafa náð að spá slatta af hlutum framm í tíman t.d átti 3 heimstyrjöldin að vera um 1950 og hinir spádómarnir eru álíka vel heppnaðir hjá þessum mönnum.

Ég held að trixið að vera góður spámaður/spákona á svipuðu kaleberi og áður nefndu menn sé að skirfa marga spádóma og helst um neikæða hluti ( fólk virðist lesa það frekar ) svo að hafa svo mikið að myndlíkingum að það er alls ekki möguleiki að skilja það og síðast en ekki síst ef einhver spyr þig hvað þetta merkir skaltu gera að því skóna að ef hinn skilji þetta ekki er hann í slöku andlegu jafnvægi og jafnvel með slaka greind og BINGÓ ...allir skilja.

 Ég er nú hræddur um það ef okkar verðurfræðingar gætu svona annað slagið spáð fyrir hvernig veðrið hafi verið í gær væru nú ekki taldir vera neitt óhóflega miklir spámenn.


Næsta síða »

Um bloggið

Valdimar Melrakki

Höfundur

Valdimar Melrakki
Valdimar Melrakki

Spurt er

Er rétt að ég gefi út ævisöguna mína
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Erla og Davíð
  • ...i_og_hafdor
  • ...valdi_1980
  • ...img_2284
  • 100_0444

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband